Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 22:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Endo fór af velli með tárin í augunum
Wataru Endo.
Wataru Endo.
Mynd: EPA
Wataru Endo var borinn af velli með tárin í augunum þegar Liverpool vann sigur á Sunderland í kvöld.

Endo byrjaði leikinn í hægri bakverði og spilaði afar vel þangað til hann meiddist illa.

Hinn 33 ára gamli Endo virtist festa fót sinn í grasinu þegar hann reyndi að hreinsa boltann frá. Hann reyndi að halda áfram en féll svo í grasið og verkurinn greinilega mikill.

Leikurinn var stopp lengi en Endo var að lokum borinn af velli. Fyrir eru Jeremie Frimpong og Connor Bradley á meiðslalistanum og því möguleikarnir ekki margir í stöðu hægri bakvarða hjá Liverpool.

Joe Gomez kom inn á fyrir Endo en hann er nýkominn til baka úr meiðslum.
Athugasemdir
banner
banner