Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 11. febrúar 2026 18:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sautján ára Thelma Karen með sitt fyrsta mark - Blikar í veseni
Kvenaboltinn
Thelma Karen fagnar hér marki gegn Breiðabliki í úrslitum Mjólkurbikarsins í fyrra.
Thelma Karen fagnar hér marki gegn Breiðabliki í úrslitum Mjólkurbikarsins í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það er óhætt að segja að Breiðablik sé í vandræðum gegn Häcken í Evrópubikarnum þessa stundina. Staðan í hálfleik var 5-0 en seinni hálfleikur er nýfarinn af stað.

Í liði Häcken eru tveir íslenskir leikmenn, markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir og hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir sem var keypt til félagsins frá FH eftir síðasta tímabil. Thelma Karen sló í gegn í Bestu deildinni síðasta sumar.

Thelma Karen er núna að spila sinn fyrsta keppnisleik með Häcken en hún var ekki lengi að láta til sín taka.

Hún skoraði nefnilega sitt fyrsta mark í keppnisleik með félaginu undir lok fyrri hálfleiks.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.


Slapp
Athugasemdir
banner