Fotbolti.net
11.02.26 - 21:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Spænski bikarinn: Orri og félagar í góðum málum

Real Sociedad lagði Athletic Bilbao að velli.

Real Sociedad lagði Athletic Bilbao að velli.

Canon

Mynd: EPA

Athletic 0 - 1 Real Sociedad
0-1 Benat Turrientes ('62 )
Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður þegar Real Sociedad vann útisigur gegn Athletic Bilbao í spænska konungsbikarnum í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum keppninnar. Seinni leikurinn fer fram á heimavelli Sociedad í byrjun næsta mánaðar.

Staðan var markalaus í hálfleik en stuttu eftir að Bilbao gerði fjórfalda breytingu í seinni hálfleiknum þá skoraði Benat Turrientes fyrir Sociedad.

Orri kom svo inn á þegar 74 mínútur voru liðnar og hjálpaði sínum mönnum að landa sigrinum. Orri hefur leikið frábærlega eftir að hann kom til baka úr meiðslum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.