Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 19:31
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Endurkomusigur hjá Fylki - Sjáðu magnað mark Vicente
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 4 - 2 ÍBV
0-1 Hermann Þór Ragnarsson ('28)
1-1 Eyþór Aron Wöhler ('40)
1-2 Vicente Rafael Valor Martínez ('44)
2-2 Hlynur Sævar Jónsson ('59)
3-2 Guðmundur Tyrfingsson ('70)
4-2 Birkir Eyþórsson ('87)

Fylkir tók á móti ÍBV í efstu deild Lengjubikarsins í Árbænum í dag og náðu gestirnir frá Vestmannaeyjum forystunni.

Hermann Þór Ragnarsson skoraði á 28. mínútu en Eyþór Aron Wöhler jafnaði fyrir Fylki. Vícente Valor kom Eyjamönnum yfir á nýjan leik skömmu fyrir leikhlé með frábæru aukaspyrnumarki svo staðan var 1-2 fyrir ÍBV.

Heimamenn skiptu um gír í síðari hálfleik eftir mikið af skiptingum í liði gestanna.

Hlynur Sævar Jónsson jafnaði metin á ný á 59. mínútu áður en Guðmundur Tyrfingsson tók forystuna.

Það var spenna á lokakaflanum allt þar til á 87. mínútu þegar Birkir Eyþórsson innsiglaði sigur Fylkis. Lokatölur 4-2.

Liðin áttust við í rðili 4 í A-deild Lengjubikarsins. Fylkir var að spila sinn síðasta leik í riðlakeppninni og endar með 12 stig eftir 5 umferðir.

ÍBV á ennþá eftir að spila við Breiðablik og Þrótt R. eftir að heimaleikjum liðsins var frestað.


Athugasemdir
banner
banner