Fotbolti.net
11.06.15 - 08:00
Arnar Geir Halldórsson

Stephane M´Bia til Trabzonspor (Staðfest)

M´Bia yfirgefur Sevilla eftir tvö góð ár

M´Bia yfirgefur Sevilla eftir tvö góð ár

Canon

Mynd: Getty Images

Kamerúnski miðjumaðurinn Stephane M´Bia er genginn til liðs við tyrkneska úrvalsdeildarliðið Trabzonspor.
M´Bia sem lék eitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni með QPR kemur til Tyrklands frá Sevilla þar sem hann hefur unnið Evrópudeildina tvö ár í röð.

Samningur hans við spænska félagið er að renna út svo Trabzonspor þarf ekki að greiða Sevilla fyrir M´Bia.

Hann er annar leikmaðurinn sem yfirgefur Sevilla í sumar en Aleix Vidal gekk nýverið í raðir Barcelona frá Sevilla.

Talið var nær öruggt að M´Bia myndi ganga í raðir Inter Milan í sumar en tyrkneska félagið kom inn á síðustu stundu og bauð Kamerúnanum tilboð sem hann gat ekki hafnað. Samningurinn er til þriggja ára og mun færa honum um 10 milljónir evra samkvæmt spænskum fjölmiðlum.

Trabzonspor endaði í 5.sæti tyrknesku deildarinnar á nýafstöðnu tímabili en á meðal leikmanna liðsins má nefna Jose Bosingwa og Oscar Cardozo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.