11.06.15 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stjóri Sheffield Wednesday rekinn (Staðfest)

Stuart Gray stýrði Sheffield Wednesday gegn Manchester City í bikarnum. Sheffield tapaði 2-1.

Mynd: Getty Images

Stuart Gray hefur verið rekinn úr stjórastöðunni hjá Sheffield Wednesday eftir 18 mánuði í starfi.
Sheffield lauk keppni um miðja Championship deild á nýliðnu tímabili og þykir stjórn félagsins það ekki viðunandi.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun en ég tel þetta vera það besta í stöðunni fyrir næsta tímabil,\" sagði Dejphon Chansiri, forseti félagsins.
„Félagið ætlar að breyta um stefnu á næsta tímabili og nýr knattspyrnustjóri skiptir miklu máli er við reynum að komast í deild þeirra bestu.
„Ég vill þakka Stuart fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta í framtíðinni.\"
Gray er sá fjórði til að yfirgefa lið í Championship deildinni eftir tímabilið. Mark Warburton er ekki lengur stjóri Brentford og þá eru bæði Neil Redfearn og Steve McClaren farnir frá Leeds United og Derby County.

Heimild: BBC