Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. júní 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Zidane sagður hafa sannfært Perez um að setja Pogba númer eitt
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, er sagður hafa sannfært Florentino Perez, forseta félagsins, um að Paul Pogba sé rétti maðurinn til að styrkja miðju liðsins.

Madrídarfélagið er að endurnýja hóp sinn eftir tímabil vonbrigða.

Perez er sagður hafa viljað fá Christian Eriksen frá Tottenham. Daninn hefur opinberað að hann vilji fá nýja áskorun í sumar.

Zidane hefur þegar fengið til sín Luka Jovic og Eden Hazard en næsta skotmark hans er Pogba.

Talið er að Pogba hafi mikinn áhuga á að fara til Real Madrid en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner