Konsa byrjar í bakverði í kvöld

Ezri Konsa

Mynd: EPA

Ezri Konsa

Mynd: EPA
Ezri Konsa mun byrja í hægri bakverði hjá enska landsliðinu gegn því norska í 8-liða úrslitum á HM í kvöld. The Athletic greinir frá. John Stones mun byrja í miðverðinum við hlið Marc Guehi.
Þá mun Noni Madueke taka sæti Bukayo Saka á hægri kantinum.

Konsa hefur byrjað alla leiki Englands til þessa í miðveerðinum en Thomas Tuchel er að reyna finna lausn í hægri bakvörðinn.
Jarell Quansah byrjaði gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum en hann tekur út fyrri leikinn sinn í tveggja leikja banni í kvöld. Reece James byrjaði fyrstu tvo leikina í riðlakeppninni áður en hann meiddist. Quansah kom inn fyrir hann en meiddist og þá byrjaði Djed Spence í 32-liða úrslitum gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.
Madueke hefur byrjað þrjá leiki á mótinu í sumar en sigur Englands í Mexíkóborg var fyrsti leikurinn þar sem hann kom ekkert við sögu.