Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 11. september 2019 08:00
Brynjar Ingi Erluson
De Bruyne við Kompany: Geymdu pláss fyrir mig hjá Anderlecht
Kevin De Bruyne og Vincent Kompany
Kevin De Bruyne og Vincent Kompany
Mynd: EPA
Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City og belgíska landsliðsins, ætlar sér að spila fyrir Vincent Kompany hjá Anderlecht.

Kompany yfirgaf Manchester City í sumar eftir ellefu ár hjá félaginu en hann vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum og þá vann hann FA-bikarinn tvisvar.

Hann ólst upp hjá Anderlecht í Belgíu en hann tók við þjálfun þess í sumar og er nú spilandi þjálfari.

De Bruyne ólst upp hjá Genk ætlar að enda ferilinn í Belgíu en hann vonast til að spila fyrir Kompany.

„Ég vona að ferill hans hjá Anderlecht verði jafn góður og hjá Manchester City. Ég er búinn að segja honum að geyma pláss fyrir mig, hvort sem það verður eftir eitt ár, sjö ár eða bara þegar ég yfirgef City," sagði De Bruyne.

„Ef hann getur gert það fyrir mig þá er ég klár," sagði De Bruyne.
Athugasemdir
banner
banner