Fotbolti.net
06.07.26 - 03:41
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg
Canon

Mynd: EPA

Mexíkó 2 - 3 England
0-1 Jude Bellingham ('36 )
0-2 Jude Bellingham ('38 )
1-2 Julian Quinones ('42 )
1-3 Harry Kane ('60 , víti)
2-3 Raul Jimenez ('69 , víti)
Rautt spjald: Jarell Quansah, England ('54)
Mexíkó og England áttust við í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt og komust gestirnir í tveggja marka forystu þegar Jude Bellingham skoraði tvennu með stuttu millibili.

Bellingham skoraði fyrst með skalla af stuttu færi eftir góðan undirbúning frá Arsenal-mönnunum Declan Rice og Bukayo Saka og rétt rúmum 20 sekúndum eftir að leikur hófst að nýju skoraði hann aftur. Í þetta skiptið skoraði Bellingham eftir laglegt samspil við Harry Kane, eftir að Elliot Anderson vann boltann hátt uppi á vellinum og átti Anthony Gordon einnig þátt í markinu.

Heimamenn minnkuðu muninn þegar markavélin Julian Quinones skoraði eftir aukaspyrnu. Boltinn hrökk til hans í kjölfar aukaspyrnunnar og gerði Quinones vel að klára með marki.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Mexíkó dauðafæri í kjölfar hornspyrnu en Bellingham náði að bjarga í aðra hornspyrnu á síðustu stundu eftir að hafa gleymt sér í dekkningunni.

Staðan var því 1-2 í hálfleik og fékk Jarell Quansah að líta beint rautt spjald í upphafi síðari hálfleiks fyrir hættulega tæklingu. Tíu Englendingar svöruðu þó með marki, þegar Harry Kane vann einvígið eftir langa markspyrnu upp völlinn og Anthony Gordon fiskaði vítaspyrnu. Kane skoraði af miklu öryggi þó að markvörður Mexíkóa hafi skutlað sér í rétt horn, en níu mínútum síðar minnkaði Raúl Jiménez muninn úr vítaspyrnu.

Í þetta skiptið gerðist Kane brotlegur innan eigin vítateigs og skoraði Jiménez örugglega af vítapunktinum, eins og vanalega.

Mexíkóar komust í fínar stöður gegn tíu Englendingum en tókst ekki að jafna metin. Gestirnir vörðust vel og ógnuðu einnig á hinum endanum, en lokatölur urðu 2-3.

England mætir Noregi í 8-liða úrslitum.
HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg
Canon

Mynd: EPA

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg
Canon

Mynd: EPA

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.