HM: Haaland sendi Brasilíu heim

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilía 1 - 2 Noregur
0-0 Bruno Guimaraes ('14 , Misnotað víti)
0-1 Erling Haaland ('79 )
0-2 Erling Haaland ('90 )
1-2 Neymar ('100)

Norska markavélin Erling Braut Haaland gerði sér lítið fyrir og sendi Brasilíu heim af heimsmeistaramótinu.
Noregur mætti Brasilíu í 16-liða úrslitum og skóp 2-0 sigur þökk sé tvennu frá Haaland og mögnuðum markvörslum hjá Örjan Nyland markverði.
Brasilía fékk dæmda vítaspyrnu eftir klaufalega tæklingu Kristoffer Ajer snemma leiks en Nyland varði frá vítaskyttunni Bruno Guimaraes.
Endrick fékk dauðafæri í síðari hálfleik en skaut framhjá þegar staðan var enn 0-0. Haaland náði svo forystunni með skalla eftir frábæran undirbúning frá Andreas Schjelderup á 79. mínútu.
Brassar reyndu að jafna en tókst ekki. Þeir sköpuðu hættulegar stöður en Haaland refsaði með marki á hinum endanum eftir hörmulegan varnarleik Brasilíu.
Haaland vann skallaeinvígi og kom boltanum á Schjelderup, sem skilaði honum til baka á Haaland. Brasilísku varnarmennirnir gáfu honum alltof mikinn tíma til að athafna sig með boltann við vítateigslínuna og kláraði norski framherjinn með frábæru marki.
Brasilíumenn fengu dæmda vítaspyrnu seint í uppbótartíma og skoraði Neymar eftir hávær rifrildi við Örjan Nyland markvörð fyrir spyrnuna. Brassar höfðu þó ekki tíma til að jafna.
Lokatölur 2-1 fyrir Noreg sem mætir Mexíkó eða Englandi í 8-liða úrslitum.