Fotbolti.net
05.07.26 - 20:49
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Haaland: Allir leikmenn vilja spila fyrir Real Madrid

Haaland: Allir leikmenn vilja spila fyrir Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Alf-Inge Haaland, faðir Erling Haaland, svaraði nokkrum spurningum í spænskri útsendingu DAZN fyrir leik Noregs gegn Brasilíu á heimsmeistaramótinu sem er í gangi þessa stundina.
Fréttamaður DAZN spurði Alfie hvort það væri einhver möguleiki að sonur hans væri á leið til Real Madrid.

„Hann er mjög ánægður hjá Manchester City og er með langan samning við félagið," svaraði Alfie. „Við erum að bíða eftir nýju tímabili, en hvaða leikmaður sem er í heiminum myndi vilja spila fyrir Real Madrid.

„Það er aldrei að vita hvað gerist í fótboltaheiminum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.