Fotbolti.net
11.09.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Dorgu þakkaði Guði fyrir tækifærið

Patrick Dorgu verst í leiknum

Patrick Dorgu verst í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Danski leikmaðurinn Patrick Dorgu var í skýjunum með 4-0 sigur Manchester United á Sabah í Meistaradeildinni í gær.
Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

Man Utd lék sinn fyrsta Meistaradeildarleik í tæp þrjú ár og vann nokkuð þægilegan sigur.

Dorgu hafði ekki heillað sérstaklega í upphafi tímabils en stóð sig vel í vinstri bakverðinum í gær og þakkaði drottni almáttugum fyrir tækifærið til að spila í Meistaradeildinni.

„Þetta var gott og ég vil þakka Guði fyrir að gefa mér tækifæri til að spila í Meistaradeildinni. Ég er mjög ánægður með mína frammistöðu, að liðið hafi fengið þrjú stig og að við séum komnir aftur í keppnina.“

„Við höfum fengið á okkur mörg mörk í síðustu leikjum og því er gott að fá smá sjálfstraust fyrir grannaslaginn um helgina,“
sagði Dorgu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.