Ramos orðaður við Man Utd - West Ham fylgist með Brassa - Sunderland vill Guendouzi
banner
   fim 11. desember 2025 15:30
Kári Snorrason
Reisa 20 metra háa styttu af Messi
Mynd: EPA
Á laugardaginn verður afhjúpuð vígaleg stytta af Messi í Kalkútta. Messi leiddi nýverið Inter Miami til sigurs í MLS bikarnum eftirsótta.

Nú er förinni heitið til Indlands í þriggja daga ferð sem ber yfirskriftina 'Geitarferðin'.

Með í för verða góðvinir Messi, þeir Rodrigo De Paul og Luis Súarez. Styttan í Kolkata var sett saman á 27 dögum af 45 manna teymi og er heill 21 metri á hæð.

Messi var heiðraður með bronsstyttu í heimalandinu árið 2016. Þá sagði Joan Laporta, forseti Barcelona, nýlega að verið væri að vinna í styttu af Messi við Nývang.
Athugasemdir
banner
banner
banner