Leikur Selfoss og Hauka sem átti að fara fram í B-deild Fótbolta.net mótsins í dag hefur verið frestað.
Leikurinn átti að fara fram á Selfossi en hann getur ekki farið fram þar sem völlurinn er á kafi í snjó eftir að það hófst að snjóa í dag. Veðrið er fljótt að breytast á Íslandi.
Nýr leiktími er á morgun, sunnudag, klukkan 14:00 á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Kári og Grótta eru með Selfossi og Haukum í riðli, en þau lið verða einnig í eldlínunni á morgun.
Athugasemdir