Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 14:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liam Daði heim í ÍBV (Staðfest)
Mynd: ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur tilkynnti rétt í þessu að Liam Daði Jeffs hefði ákveðið að ganga til liðs við uppeldisfélagið ÍBV. Í tilkynningu ÍBV kemur fram að sóknarmaðurinn skrifi undir fjögurra ára samning í Eyjum.

Liam Daði er fæddur árið 2006 og er fæddur í Vestmannaeyjum. Faðir hans er Ian Jeffs sem lék með ÍBV á sínum tíma. Móðir hans er Sigríður Ása Friðriksdóttir sem lék sömuleiðis með ÍBV á sínum tíma.

Hann skoraði tíu mörk í 24 Lengjudeildarleikjum með Þrótti á síðasta tímabili. Fótbolti.net fjallaði um áhuga ÍBV á Liam Daða og tilboð í hann í byrjun desember. Liam Daði lék með ÍBV í Lengjudeildinni 2021 en hélt svo í Laugardalinn.

Tilkynning Þróttar
Liam Daði Jeffs hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍBV. Við hjá Þrótti þökkum Liam kærlega fyrir gríðarlega vel unnin störf og gangi honum vel á í framtíðinni. Liam kveðst þakklátur fyrir tíma sinn hjá Þrótti og sagði einfaldlega: "Takk fyrir mig og lifi Þróttur" áður en hann gekk til liðs við ÍBV.

Tilkynning ÍBV
Liam verður tvítugur á árinu en hann lék með ÍBV upp alla yngri flokkana, allt þar til hann flutti á höfuðborgarsvæðið á 16. aldursári. Hann var lykilmaður í liði Þróttar á tímabilinu en hann skoraði 10 mörk í þeim 24 leikjum sem hann spilaði með liðinu í Íslandsmótinu þegar Þróttarar rétt misstu af sæti í efstu deild.

Lengi vel var Liam miðjumaður en hann færði sig framar á völlinn síðustu árin sín í yngri flokkunum og var orðinn góður sóknarmaður í 2. flokki þegar hann fór að fá fleiri tækifæri í meistaraflokki Þróttar sem hann nýtti einstaklega vel svo eftir var tekið.

Það er mikið gleðiefni fyrir ÍBV að fá í sínar raðir Eyjamann sem býr yfir þeim gæðum sem Liam hefur og hlakkar knattspyrnuráðið til samstarfsins.
Velkominn aftur heim!
Athugasemdir
banner
banner