Ljóst er hvaða lið verða með Íslandi í riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar. Ísland féll úr B-deildinni í fyrra og var í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn.
Ísland fékk Búlgaríu úr öðrum styrkleikaflokki, Eistland sem var lægst skrifaða liðið í þriðja flokki og svo sigurvegarann úr viðureign Lúxemborgar og Möltu sem mætast í umspili í mars.
Þetta er fimmta útgáfa Þjóðadeildarinnar en leikið verður í riðlunum í september til nóvember á þessu ári.

RIÐILL ÍSLANDS:
Ísland (74)
Búlgaría (87)
Eistland (129)
Lúxemborg (102) eða Malta (161)
(Innan sviga er staða liðanna á heimslista FIFA)
Liðið sem vinnur riðilinn kemst beint í B-deildina, liðið sem enda í öðru sæti fer í umspil um sæti í B-deild. Liðið í þriðja sæti fer í umspil um fall og liðið í neðsta sæti fellur beint í D-deild.
Allir riðlar C-deildarinnar:
Riðill 1:
Albanía
Finnland
Belarús
San Marínó
Riðill 2:
Svartfjallaland
Armenía
Kýpur
Lettland eða Gíbraltar
Riðill 3:
Kasakstan
Slóvakía
Færeyjar
Moldóva
Riðill 4:
Ísland
Búlgaría
Eistland
Lúxemborg eða Malta
Athugasemdir