Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 17:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sterling til Feyenoord (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Raheem Sterling er genginn í raðir Feyenoord en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa fengið samningi sínum við Chelsea rift á dögunum.

Hann skrifar undir samning sem gildir út yfirstandandi tímabil. Feyenoord situr í 2. sæti hollensku deildarinnar, sautján stigum á eftir PSV.

Sterling er 31 árs og á að baki 82 landsleiki fyrir Englnad. Á ferlinum hefur hann spilað með Liverpool, Manchester City, Chelsea og Arsenal.

Hann hefur unnið ensku deildina fjórum sinnum, enska bikarinn og fjórum sinnum deildabikarinn.

„Það er auðvitað frábært að okkur hafi tekist að sannfæra leikmann af þeim gæðaflokki sem Raheem er í um að semja við okkur. Ferilskrá hans í fótbolta talar sínu máli: hann er leikmaður sem getur án efa breytt úrslitum leiks og ég er sannfærður um að hann muni reynast verðmæt viðbót við liðið þegar við vinnum að því að ná markmiðum okkar í seinni hluta þessa tímabils," segir Robin van Persie sem er þjálfari Feyenoord.

„Sem leikmaður án félags hef ég, í fyrsta skipti í langan tíma, haft tækifæri til að stjórna næsta skrefi á ferlinum mínum. Ég vildi gefa mér tíma til að ræða við félög og þjálfara þeirra til að skilja betur það hlutverk sem þau sáu mér fyrir höndum og tryggja að ég geti verði verðmætur á þessum næsta kafla. Eftir að hafa talað ítarlega við forstjórann Dennis te Kloese og Robin er ég viss um að Feyenoord er staður þar sem ég get verið hamingjusamur og komið mér fyrir sem verðmætur meðlimur liðsins. Að spila erlendis er alveg ný áskorun fyrir mig - og ein sem ég er tilbúinn að takast á við," segir Sterling við undirskrift.
Athugasemdir
banner
banner
banner