Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. mars 2020 00:07
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Árni Páll sá um KFS
Mynd: Guðmundur Karl
Árborg 2 - 0 KFS
1-0 Árni Páll Hafþórsson ('8)
2-0 Árni Páll Hafþórsson ('61)

Árni Páll Hafþórsson gerði bæði mörkin er Árborg lagði KFS að velli í fyrstu umferð C-deildar Lengjubikarsins.

Árni Páll kom heimamönnum yfir á áttundu mínútu og innsiglaði svo sigurinn á 61. mínútu.

Leikið var á JÁVERK-vellinum á Selfossi en Hamar, KFB og Ísbjörninn eru einnig með í riðlinum.

KFS á næst leik við KFB á Bessastaðavelli á laugardaginn. Árborg á svo heimaleik gegn KFB föstudaginn í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner