Elías Rafn Ólafsson var í markinu hjá Midtjylland sem heimsótti Nottingham Forest við erfiðar aðstæður í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Gestirnir byrjuðu betur en Murillo bjargaði á marklínu eftir aðeins þriggja mínútna leik.
Gestirnir byrjuðu betur en Murillo bjargaði á marklínu eftir aðeins þriggja mínútna leik.
Elías þurfti að taka á honum stóra sínum þegar Omari Hutchinson átti gott skot en Elías bjargaði í horn. Eftir rúmlega hálftíma leik varði Elías skot Ola Aina beint fyrir fætur Igor Jesus en hann náði ekki skoti á markið.
Undir lok fyrri hálfleiks bjargaði Elías enn og aftur þegar hann varði frábærlega frá Elliot Anderson.
Það byrjaði að hellirigna snemma í seinni hálfleik. Forest hélt áfram að þjarma að marki Midtjylland en þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma skoraði Cho Gue-Sung með skalla og kom Midtjylland yfir og tryggði liðinu sigurinn.
Ferencvaros, lærisveinar Robbie Keane, sem er orðaður við stjórastarf Tottenham og Celtic, eru í góðri stöðu eftir sigur á heimavelli gegn Braga.
Celta Vigo komst yfir gegn Lyon en Borja Iglesias fékk að líta rauða spjaldið snemma í seinini hálfleik. Lyon nýtti sér liðsmuninn þegar Endrick, lánsmaður frá Real Madrid, jafnaði metin undir lokin og þar við sat. Þá er Genk er yfir í einvíginu gegn Freiburg eftir sigur á heimavelli.
Ferencvaros 2 - 0 Braga
1-0 Gabi Kanichowsky ('32 )
2-0 Lenny Joseph ('69 )
Genk 1 - 0 Freiburg
1-0 Zakaria El Ouahdi ('24 )
Celta 1 - 1 Lyon
1-0 Javi Rueda ('25 )
1-1 Endrick ('87 )
Rautt spjald: Borja Iglesias, Celta ('55)
Nott. Forest 0 - 1 Midtjylland
0-1 Gue-sung Cho ('80 )
Athugasemdir



