Þetta var vond vika fyrir ensku liðin þegar fyrri leikir 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar fóru fram. Ekkert þeirra vann sigur.
Tottenham og Newcastle fengu skelli, og Liverpool og Chelsea töpuðu. Newcastle og Arsenal gerðu jafntefli.
Þrátt fyrir úrslitin er erfitt að sjá England missa af því að hreppa fimmta Meistaradeildarsætið. Ekki er þó hægt að ganga að neinu vísu og ef ensku liðin detta út í hrönnum gæti staðan verið fljót að breytast.
UEFA gefur þeim þjóðum sem hafa staðið sig best á tímabilinu í Evrópukeppnum tvö aukasæti. Þetta fyrirkomulag tók gildi á síðasta tímabili þegar Meistaradeildin var stækkuð úr 32 í 36 lið.
Spánn er komið upp í annað sætið í baráttunni en Þýskaland er þar rétt á eftir.
Baráttan um aukasæti í Meistaradeildinni
1. England
2. Spánn
------
3. Þýskaland
4. Ítalía
5. Portúgal
6. Frakkland

Þjóðir vinna sér inn stig með því að vinna og gera jafntefli í Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni. Tvær stigahæstu þjóðirnar á tímabilinu fá aukasæti beint í Meistaradeildina.
Á þessu tímabili fengu England og Spánn aukasæti vegna frammistöðu liða frá löndunum á 2024-25 tímabilinu. Newcastle og Athletic Bilbao fengu þau sæti.
Athugasemdir