Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lánaður eftir martröðina í Madríd og Murillo til Man Utd
Powerade
Kinsky var tekinn af velli eftir 17 mínútur í Madríd.
Kinsky var tekinn af velli eftir 17 mínútur í Madríd.
Mynd: EPA
Murillo orðaður við Man Utd.
Murillo orðaður við Man Utd.
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er í boði Powerade og það er BBC sem tekur saman það helsta í slúðurheimum. Þrír leikmenn eru orðaðir við Arsenal.



Murillo (23) miðvörður Nottingham Forest er einn af nokkrum varnarmönnum á lista Manchester United yfir möguleg skotmörk í sumar. (i paper)

Arsenal íhugar að bjóða í Tino Livramento (23) leikmann Newcastle í sumar. Livramento hefur ekki enn sýnt að hann vilji framlengja við Newcastle. (Telegraph)

Tottenham mun leyfa Antonin Kinsky (22) að fara á láni í sumar til að reyna byggja aftur upp sjálfstraustið. Hann var tekinn af velli eftir einungis 17 mínútur gegn Atletico Madrid á þriðjudag. (Telegraph)

Jeremy Doku (23) vængmaður Manchester City mun leitast eftir svörum yfir hver staða sín sé hjá félaginu, en Atletico Madrid fylgist með stöðu mála. (Teamtalk)

West Ham vill kaupa Axel Disasi (28) frá Chelsea ef félagið heldur sér uppi. Disasi er á láni frá Chelsea, en West Ham er ekki tilbúið að greiða þær 38,8 milljónir punda sem Chelsea greiddi fyrir hann árið 2023. (Mail)

Aston Villa og Arsenal berjast um undirskrift Julian Brandt (29) sem mun yfirgefa Dortmund á frjálsri sölu í sumar. (Football Insider)

Juventus er tilbúið að fara lengra með áhuga sinn á Marcos Senesi (28) varnarmanni Bournemouth sem verður samningslaus í sumar. (Gazzettan)

Joshua Zirkzee (24) vill fara frá Manchester United í sumar eftir að United kom í veg fyrir að hann færi í janúar. (Sun)

Liverpool og Arsenal leiða kapphlaupið um Finn Jeltsch (19) varnarmann Stuttgart. Bayern hefur einnig áhuga. (Teamtalk)

Felix Nmecha (25) mun frmalengja samning sinn við Dortmund þrátt fyrir að áhugi sé frá Man Utd á miðjumanninum. (Florian Plettenberg)
Athugasemdir
banner
banner
banner