Fotbolti.net
12.05.15 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Ásgeir Aron í Gróttu (Staðfest)

Ásgeir Aron í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Ásgeir Aron Ásgeirsson hefur gengið til liðs við Gróttu.
Ásgeir Aron sleit krossband í leik með Fjölni sumarið 2013 og hefur ekkert spilað síðan þá.

Ásgeir Aron hefur lengst af á ferli sínum leikið með Fjölni en hann var einnig á mála hjá ÍBV og HK 2010 og 2011.

Þess 28 ára gamli leikmaður er sonur Ásgeirs Sigurvinssonar.

Hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Gróttu á laugardag þegar liðið fær Víking Ólafsvík í heimsókn.

Ásgeir Aron er að þjálfa 2. flokk kvenna hjá Gróttu/KR og þekkir því til á Seltjarnarnesi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.