12.05.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brasilíska ungstirnið Nathan fer til Chelsea (Staðfest)

Nathan Allan de Souza heitir leikmaðurinn en er þekktur sem Nathan. Hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður og er oft líkt við Willian, sem hefur verið að spila vel fyrir Chelsea.

Mynd: Getty Images

Hinn 19 ára gamli Nathan staðfesti samning við Chelsea með því að birta mynd á Instagram síðu sinni.
Nathan birti myndir af sér að skrifa undir samning og myndir af sér í æfingagalla Chelsea á æfingasvæði félagsins.

Nathan er fæddur árið 1996 og komst í byrjunarlið Atletico Paranaense í brasilísku efstu deildinni og þótti standa sig vel. Hann á 19 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Brasilíu og verður líklega lánaður út fyrstu árin sín hjá Chelsea til að fá atvinnuleyfi.
„Þetta er draumur að rætast! Í fyrsta lagi vil ég þakka guði fyrir að vísa veginn, föður mínum sem trúði alltaf á hæfileika mína og fjölskyldu og vini sem hafa alltaf stutt mig,\" skrifaði Nathan á Instagram.
Chelsea hefur oft verið gagnrýnt fyrir stefnu sína þar sem félagið iðkar það að kaupa unga leikmenn og lána þá til liða innan Evrópusambandsins til að þeir fái atvinnuleyfi. Þegar þeir fá loks atvinnuleyfi er spurning hvort þeir komist í hóp hjá Chelsea eða verði seldir, sérstaklega þar sem margir leikmenn á svipuðum aldri spila sömu stöður.