12.05.15 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Bryndís og enskur markvörður í ÍBV (Staðfest)

Bryndís Lára er komin aftur til ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bryndís Lára er komin aftur til ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það komu góð tíðindi til kvennaliðs ÍBV í dag því félagið hefur endurheimt markvörðinn Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur sem hefur leikið í Noregi í vetur og einig fengið enska markvörðinn Holly Clarke til liðs við sig.
ÍBV hefur samið við markvörðinn Holly Clarke frá Englandi en Holly hefur leikið með háskólaliði frá Montgomery í Bandaríkjunum. Holly kemur til liðs við ÍBV og verður með liðinu næstu tvo mánuði eða þar til hún þarf að snúa aftur til síns náms þar ytra.
Þá bárust Eyjamönnum þær góðu fréttir í dag að aðalmarkvörður liðsins undanfarin ár Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur snúið heim frá Noregi og mun leika með ÍBV í sumar.
„Mikið fagnaðarefni fyrir lið ÍBV enda Bryndís Lára kosin verið besti leikmaður liðsins tvisvar af þeim þremur árum sem hún hefur leikið fyrir félagið,\" segir í tilkynningu félagsins.