12.05.15 - 19:24
Ívan Guðjón Baldursson
Jonathan Barden skrifar undir hjá ÍBV (Staðfest)

Barden mun spila á Hásteinsvelli í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barden mun spila á Hásteinsvelli í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski miðjumaðurinn Jonathan Patrick Barden er genginn til liðs við ÍBV eftir að hafa verið leikmaður háskólaliðs James Madison University í Bandaríkjunum undanfarin ár.
Tryggvi Guðmundsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Tryggvi Guðmundsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Barden er búinn að vera á reynslu hjá Eyjamönnum sem leist vel á þennan unga leikmann, en Barden er aðeins 22 ára gamall.
Auk Barden gekk norski varnarmaðurinn Tom Skogsrud í raðir Eyjamanna fyrr í vikunni og Hollendingurinn Mees Siers skrifaði undir tveggja ára samning við félagið fyrir mánuði.
Auk Barden gekk norski varnarmaðurinn Tom Skogsrud í raðir Eyjamanna fyrr í vikunni og Hollendingurinn Mees Siers skrifaði undir tveggja ára samning við félagið fyrir mánuði.
