12.05.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Katia Maanane í Val (Staðfest) - Ásta Árna aðstoðarþjálfari

Baráttuhundurinn Ásta er þekkt fyrir skemmtilega innkaststækni sem hún notaði óspart með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deild kvenna í formi franska sóknarmannsins Katia Maanane.
Valur mætir Aftureldingu í 1. umferðinni í Pepsi-deild kvenna næstkomandi fimmtudag og verið er að vinna í að Katia fái leikheimild. Ef allt gengur upp spilar hún í fyrstu umferð.

Þá var einnig verið að ráða aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna. Aðstoðarþjálfarinn er Ásta Árnadóttir sem var leikmaður Valsara í fjögur ár áður en hún fór til Tyresö í sænska kvennaboltanum árið 2008.
Ásta er búin að starfa sem sjúkraþjálfari með liði Valsara og er þegar mikilvægur partur af þjálfarateyminu.