Fotbolti.net
12.06.15 - 09:51
Magnús Már Einarsson

Adam Bogdan í Liverpool (Staðfest)

Adam Bogdan.

Adam Bogdan.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur fengið markvörðinn Adam Bogdan í sínar raðir frá Bolton.
Bogdan verður samningslaus um mánaðarmótin þá mun hann fara frítt til Liverpool.

Hinn 27 ára gamli Bogdan hefur verið í átta ár á mála hjá Bolton.

Ungverjinn á að mæta til Liverpool til að berjast við Simon Mignolet um markvarðar stöðuna.

Bogdan vakti athygli Liverpool í bikarleik liðanna á Anfield í janúar þar sem hann varði frábærlega og hélt hreinu.

Bogdan er þriðji samningslausi leikmaðurinn sem Liverpool semur við í sumar en áður höfðu Danny Ings og James Milner samið við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.