Fotbolti.net
12.06.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Maurizio Sarri tekur við Napoli (Staðfest)

Maurizio Sarri tekur við Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Maurizio Sarri er nýr þjálfari Napoli og tekur við af Rafael Benitez sem er tekinn við konunglega stórveldinu í Madríd.

Sarri gerði frábæra hluti með Empoli síðustu þrjú tímabil þar sem hann kom liðinu í A-deildina á Ítalíu og hélt því uppi á fyrsta tímabili.
Sarri og Napoli komust að samkomulagi fyrir nokkru síðan en félagið tafði félagsskiptin til að bíða eftir svari frá Vincenzo Montella, sem var rekinn frá Fiorentina fyrr í þessari viku.

Sarri stimplaði sig rækilega inn í ítölsku A-deildina þar sem hann spilaði gífurlega sóknarsinnaðan og skemmtilegan bolta með Empoli sem endaði átta stigum frá fallsæti.

Heimild: FI

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.