12.06.15 - 14:25
Magnús Már Einarsson
Memphis til Man Utd (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Manchester United

Mynd: Heimasíða Manchester United
Hollendingurinn efnilegi Memphis Depay hefur gengið í raðir Manchester United.
United komst að samkomulagi við PSV Eindhoven um kaup á Memphis í síðasta mánuði.
Leikmaðurinn skrifaði síðan undir fjögurra ára samning við United í dag með möguleika á árs framlengingu.

„Þetta er draumur að rætast hjá mér,\" sagði Memphis eftir að hann skrifaði undir.
„Ég fæ að spila með stærsta féalgi í heimi og fæ einnig tækifæri til að vinna með þeim sem er besti stjóri heims að mínu mati, Louis van Gaal.\"
Memphis var gríðarlega eftirsóttur eftir magnað tímabil með Hollandsmeisturum PSV Eindhoven.
Memphis er 21 árs gamall og skoraði 22 mörk í 30 deildarleikjum á tímabilinu. Auk þess lagði hann fimm mörk upp og var átta sinnum valinn maður leiksins, eða í um fjórða hverjum leik.
Þá skoraði Memphis þrjú mörk í sex leikjum í Evrópudeildinni og var einu sinni valinn maður leiksins þar.