Fotbolti.net
12.06.15 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Portúgölsku meistarararnir fá Taarabt (Staðfest)

Taarabt fagnar í leik með AC Milan.

Taarabt fagnar í leik með AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgölsku meistararnir í Benfica hafa fengið til sín Marokkómanninn Adel Taarabt sem skrifað hefur undir fimm ára samning. QPR rifti samningi sínum Taarant sem lék aðeins þrjá byrjunarliðsleiki í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.
QPR féll niður í Championship-deildina en Taarabt var sex ár á Loftus Road, hann fer á frjálsri sölu til Benfica.

Taarabt er 26 ára en hann hefur ekki spilað reglulega fyrir QPR síðan tímabilið 2012-13 en þá féll QPR einnig úr úrvalsdeildinni.

Þessi fyrrum leikmaður Tottenham hefur einnig leikið á lánssamningum hjá Fulham og AC Milan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.