Sóknarmaðurinn sterki Romelu Lukaku kom Belgíu yfir gegn Rússlandi í leik sem núna stendur yfir á Evrópumótinu.
Lukaku tileinkaði mark sitt liðsfélaga sínum hjá Inter, Christian Eriksen.
Eriksen hneig niður í dag þegar Danmörk spilaði við Finnland á Evrópumótinu. Hann var fluttur á sjúkrahús og er líðan hans sem betur fer stöðug.
Lukaku skoraði gegn Rússum og hann fagnaði með því að hlaupa upp að myndavél. Hann sagði í myndavélina: „Ég elska þig Chris."
Staðan er núna orðin 2-0. Thomas Meunier bætti við öðru marki fyrir Belgíu.
Lukaku went to the camera and said "I love you" to Christian Eriksen after scoring for Belgium ♥️ pic.twitter.com/ySeU9OWvUg
— Bleacher Report (@BleacherReport) June 12, 2021
Athugasemdir