Fotbolti.net
12.07.26 - 21:41
Ívan Guðjón Baldursson

Aron Sig yfirlýsingaglaður: Ég slæ markametið

Aron Sig yfirlýsingaglaður: Ég slæ markametið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson var yfirlýsingaglaður eftir stórsigur KR gegn ÍBV í Bestu deildinni fyrr í kvöld og sagðist ætla að bæta markamet deildarinnar.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 ÍBV
Hann svaraði spurningum í viðtali við Vísi að leikslokum og sagði að markmið sitt væri einfalt. Hann ætlar að vinna Gullskóinn og slá markamet efstu deildar í leiðinni.

Viðtalið í heild

Aron skoraði tvö mörk og lagði eitt upp, hann er kominn með 14 mörk og 7 stoðsendingar í 15 leikjum. Hann er því sjö mörkum frá því að jafna markamet efstu deildar, sem stendur í 21 marki.

Aron var tekinn af velli á 70. mínútu og fékk því ekki tækifæri til að fullkomna þrennu.

„Að sjálfsögðu langar mig að vera lengur inn á, skora fleiri mörk og leggja upp fleiri mörk. Við erum með frábæran hóp, það eru mjög góðir menn á bekknum. Flott að sjá strákana koma inn á. Fannar (Heimisson) var að fá sinn fyrsta leik og spilaði ótrúlega vel. Galdur (Guðmundsson) kom inn, mjög góður, Sigurður Breki (Kárason). Þessir strákar eiga skilið að spila og það er ekki hægt að kvarta yfir því. Hvort sem það er ég eða einhver annar, það er hörð samkeppni hérna," sagði Aron við Vísi.

„Ég er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið. Þess vegna er maður kannski extra súr að vera tekinn út af í dag en í mínum haus er ég með þetta bæði, búinn að vinna bæði gullskóinn og slá markametið."

Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður

Heimild: Vísir

Aron Sig yfirlýsingaglaður: Ég slæ markametið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sig yfirlýsingaglaður: Ég slæ markametið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.