Fotbolti.net
12.08.19 - 18:00
Arnar Helgi Magnússon

Pólland: Fjórði leikur Böðvars og félaga í röð án sigurs

Böðvar og Arnar Daði.

Böðvar og Arnar Daði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Böðvar Böðvarsson var á sínum stað í byrjunarliði Jagiellonia Białystok þegar liðið mætti Lechia Gdansk í pólsku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
Lechia komst yfir þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður en það var eina markið sem að skorað var í fyrri hálfleik.

Ognjen Mudrinski, liðsfélagi Böðvars, jafnaði leikinn þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Hvorugu liðinu tókst að setja sigumark og jafntefli því niðurstaðan, 1-1.

Pólska deildin er nýhafin en fjórar umferðir eru búnar af mótinu. Jagiellonia situr í sjönda sæti með fimm stig, stigi minna en Lechia.

Jagiellonia hefur ekki sigrað síðan í fyrstu umferð mótsins þegar liðið hafði betur gegn Arka Gdynia, 3-0.

Næsti leikur liðsins er á laugardaginn gegn Górnik Zabrze.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.