12.08.21 - 12:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Árni Marinó ekki búinn að æfa stöðu markvarðar lengi

Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Árni Marinó Einarsson hefur komið virkilega öflugur inn sem markvörður ÍA í sumar.
Eftir að Árni Snær Ólafsson meiddist illa, þá kom Dino Hodzic inn í markið. Hann stóð sig ekki nægilega vel og því fékk Árni Marinó tækifærið. Hann hefur ekki litið um öxl eftir það.
Árni Marinó var maður leiksins í gær þegar ÍA vann 1-0 sigur gegn FH í Mjólkurbikarnum.
„Ungur og efnilegur markmaður sem var gjörsamlega frábær í þessum leik. Bjargaði Skagamönnum í lok leiksins," skrifaði Benjamín Þórðarson í skýrslu sinni.
Árni Marinó er 19 ára gamall en í fyrra spilaði hann með B-liði 2. flokks ÍA/Kára/Skallagríms.
Árni er ekki búinn að æfa mark mjög lengi, hann byrjaði að æfa sem markvörður í janúar 2017. Fyrir það æfði hann sem útileikmaður. Virkilega athyglisvert, sérstaklega í ljósi þess hve vel Árni hefur spilað að undanförnu; besti maður vallarins í gær. Hann þarf að halda áfram að spila vel ef ÍA á að eiga möguleika á því að halda sæti sínu í efstu deild.

Byrjar að æfa mark í Janúar 2017! Fyrir það æft sem útileikmaður 🤯
— ÍA Akranes FC (@ia_akranes) August 11, 2021
Enn einn stórleikurinn hjá Árna Marínó í gær. Minna en ár síðan hann spilaði með B liði 2fls ÍA, spilaði 9 af 10 leikjum liðsins síðasta sumar. Alvöru framför. pic.twitter.com/kqZSjelvcY
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) August 12, 2021