Allt bendir til þess að John Stones geti spilað með Manchester City gegn Norwich um helgina.
Stones hefur verið frá keppni í mánuð vegna meiðsla á læri en hann hefur hafið æfingar og ætti að ná leiknum gegn Norwich.
Stones hefur verið frá keppni í mánuð vegna meiðsla á læri en hann hefur hafið æfingar og ætti að ná leiknum gegn Norwich.
Þetta eru sérstaklega kærkomnar fréttir fyrir City því miðvörðurinn Aymeric Laporte meiddist illa á hné á dögunum og verður frá til áramóta.
Þegar Stones var einnig á meiðslalistanum var Nicolas Otamendi eini miðvörðurinn í hópnum hjá City sem var heill heilsu en miðjumaðurinn Fernandinho þekkir þó einnig að spila í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir