Fotbolti.net
12.09.21 - 21:22
Brynjar Ingi Erluson

Zlatan skoraði 24. tímabilið í röð

Zlatan Ibrahimovic er magnað eintak

Zlatan Ibrahimovic er magnað eintak

Canon

Mynd: EPA

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic náði merkum áfanga í 2-0 sigri Milan á Lazio í Seríu í kvöld en þetta er 24. tímabilið í röð sem hann skorar.
Hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir Malmö í sænsku úrvalsdeildinni árið 1999.

Síðan þá hefur hann skorað yfir 500 mörk fyrir Ajax, Juventus, Inter, Milan, Barcelona, Paris Saint-Germain, Manchester United og Los Angeles Galaxy.

Hann skoraði 24. tímabilið í röð með marki sínu gegn Lazio í kvöld.

Magnaður árangur hjá Svíanum sem er 39 ára gamall en hann verður fertugur í næsta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.