Fotbolti.net
12.09.24 - 09:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Albert mætti í dómsal í morgun

Albert Guðmundsson.

Albert Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótboltamaðurinn Albert Guðmundsson mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun en hann sætir ákæru fyrir nauðgun. Vísir greinir frá og birtir mynd af Alberti er hannn mætti í dómsal.

Reiknað er með því að aðalmeðferð málsins muni taka tvo daga og mun mikill fjöldi bera vitni.
Þinghald er lokað eins og venjan er í kynferðisbrotamálum.

Albert hefur neitað sök í málinu og verjandi hans gerði það sömuleiðis fyrir hönd skjólstæðings síns þegar ákæran var þingfest í héraði 3. júlí í sumar.

Albert hefur ekki verið með íslenska landsliðinu í sumar og ekki í nýliðnu landsliðsverkefni. Á meðan mál hans hefur verið til meðferðar hjá dómstólum hefur Albert ekki verið valinn í landsliðið.

Hann hefur glímt við meiðsli að undanförnu og hefur ekki spilað sinn fyrsta leik með Fiorentina eftir skiptin frá Genoa í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.