12.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Félagskiptin til Chelsea gengu ekki í gegn - „Koma önnur tækifæri"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Lamine Camara, miðjumaður Mónakó, er einbeittur á að spila með liðinu eftir að félagaskipti hans til Chelsea gengu ekki eftir í sumar.
Chelsea var nálægt því að ganga frá kaupum á þessum 22 ára gamla miðjumanni á lokadegi félagaskiptagluggans en Mónakó hætti við á síðustu stundu.
Chelsea var nálægt því að ganga frá kaupum á þessum 22 ára gamla miðjumanni á lokadegi félagaskiptagluggans en Mónakó hætti við á síðustu stundu.
„Þetta er hluti af því að vera fótboltamaður. Ég náði að vera faglegur og ekki dvelja við þetta of mikið. Fyrst þetta gerðist þýðir ekkert að hugsa um þetta," sagði Camara.
„Það gerist allt hratt í fótbolta, kannski koma önnur tækifæri. En núna er ég einbeittur á tímabilið með Mónakó."
Camara hefur einnig verið orðaður við Liverpool.
„Það gerist allt hratt í fótbolta, kannski koma önnur tækifæri. En núna er ég einbeittur á tímabilið með Mónakó."
Camara hefur einnig verið orðaður við Liverpool.
