12.09.26 - 07:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Aðsóknin í 8. sæti. Bikarmeistari í þriðja sinn. Hver var eldri?
Úrslitaleikur Breiðabliks og Aftureldingar í bikarkeppni karla í gærkvöld er í öðru sæti yfir best sóttu bikarúrslitaleikina frá aldamótum. Þá varð einn leikmanna Breiðabliks bikarmeistari í þriðja sinn og fimm Blikar fögnuðu sínum öðrum bikarmeistaratitli. En varð Birkir Már Sævarsson sá elsti til að spila bikarúrslitaleik?
Áhorfendur á leiknum voru 5.630 talsins, aðalstúka Laugardalsvallarins var þétt setin og hleypa þurfti áhorfendum sem ekki komust fyrir þar yfir í hina stúkuna, sem alla jafna er lokuð á öðrum leikjum en landsleikjum.
Þá er þetta áttundi besti sótti úrslitaleikurinn frá því farið var að spila úrslitaleikina á Laugardalsvellinum árið 1973. Sex sinnum var aðsóknin betri á síðustu öld en frá þeim tíma er það aðeins viðureign Vals og KR árið 2015 sem dró að sér fleiri áhorfendur en viðureign Breiðabliks og Aftureldingar.