12.11.26 - 09:15
Kári Snorrason
Siggi Raggi hættur með NSÍ (Staðfest)

NSÍ vann óvart færeysku Meistaradeildina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur látið af störfum sem þjálfari NSÍ Runavíkur í Færeyjum.
Búist var við að hann myndi hætta með liðið en NSÍ staðfesti tíðindin í morgunsárið. Siggi Raggi segir sjálfur í færslu á Facebook að hann vilji flytja nær fjölskyldu og vinum.

Siggi tók við liðinu fyrir um ári síðan og gerði liðið að Færeyjarmeisturum í ár, en um er að ræða annan meistaratitill félagsins í sögunni, sá fyrri kom árið 2007.
Hann hefur verið orðaður við endurkomu í íslenska boltann, en hann var síðast þjálfari Keflavíkur fyrir þremur árum. Hann fór á fund hjá Fylki en Aron Baldvin Þórðarson er tekinn við liðinu.