Fotbolti.net
11.11.26 - 16:49
Kári Snorrason
Ítalska deildin

Robert Sanchez slapp ómeiddur eftir harkalegt bílslys

Í leik með Como í Meistaradeildinni.

Í leik með Como í Meistaradeildinni.

Canon

Mynd: EPA

Robert Sanchez slapp án alvarlegra meiðsla eftir að hafa lent í harkalegum árekstri á þekktri kappakstursbraut í Þýskalandi á mánudaginn.

Spænski markvörðurinn, sem leikur á láni hjá Como frá Chelsea, hefur mikla bíladellu og ákvað að nýta landsleikjahléið til að svala þeim þorsta.

Slysið varð þegar hann missti stjórn á Ferrari-bíl sínum í beygju og hafnaði á vegriði á Nürburgring brautinni í vesturhluta Þýskalands.
Nokkur hundruð manns voru vitni af slysinu og sagði sjónarvottur að bifreið Sanchez hafi verið á vel yfir 100 kílómetra hraða þegar hann klessti á.

Markvörðurinn slapp ómeiddur og samkvæmt sjónarvottinum gekk hann út úr bílnum eins og ekkert hafi skeð og á hann að hafa byrjað að tína brot úr bílnum sem skemmdist illa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.