Fotbolti.net
12.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yamal fær ekki sér meðferð - „Þoli ekki fólk sem reynir að ljúga"

Yamal fær ekki sér meðferð - „Þoli ekki fólk sem reynir að ljúga"
Canon

Mynd: EPA

Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, varði Lamine Yamal gegn fullyrðingum um að hann fengi sér meðferð eftir að framherjinn fékk að koma til móts við hópinn síðar en aðrir.
„Það sem særir mig mest eru lygarnar, skortur á sannleiksgildi og uppspuni. Þess vegna hef ég opinberað meira en ég hefði átt að gera, en þetta er eina leiðin fyrir fólk að vita sannleikann. Ég þoli ekki fólk sem reynir að blekkja og ljúga," sagði De la Fuente.

Yamal verður ekki með spænska landsliðinu í útileik gegn Tékklandi í Þjóðadeildinni í kvöld en ætti að vera klár í slaginn fyrir heimaleik gegn Englandi á sunnudaginn.

Yamal hefur byrjað tímabilið stórkostlega með Barcelona en hann hefur komið að 25 mörkum í 16 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.