12.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Vonandi vinnur Bellingham marga titla með Real og landsliðinu"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois var í áhugaverðu viðtali við Sky Sports þar sem hann hrósaði Jude Bellingham í hástert en þeir eru liðsfélagar hjá Real Madrid.
„Í fyrsta lagi er hann frábær einstaklingur, góður vinur. Í öðru lagi er hann stórkostlegur leikmaður. Hann var frábær á sínu fyrsta tímabili (með Real). Við spiluðum allir undir getu á síðustu leiktíð, hann spilaði stórkostlega á HM. Hann var mögulega besti leikmaður Englands miðað við leikina sem ég sá," sagði Courtois.
Bellingham skoraði sjö mörk í átta leikjum á HM en aðeins Kylian Mbappe (10) og Lionel Messi (8) skoruðu fleiri mörk.
„Hann hefur haldið þessu áfram. Hann er sterkur á boltann, varnarlega og er mjög ungur ennþá. Ég er viss um að hann muni vinna marga titla hjá Real Madrid og vonandi líka enska landsliðinu."
„Vonnadi ekki á EM því ég vona að Belgía vinni. En ef þeir myndu vinna yrði ég ánægður fyrir hönd hans. Hann er frábær leikmaður," sagði Courtois léttur að lokum.