11.11.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brynjólfur býst við að Groningen nýti ákvæðið - „Bara einhver blaðamannaskrif"

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Brynjólfur Willumsson hefur verið að spila frábærlega með Groningen í hollensku deildinni en hann er markahæstur ásamt þremur öðrum leikmönnum með níu mörk í 12 leikjum.
Samningur hans við Groningen rennur út næsta sumar en félagið hefur möguleika á að nýta ákvæði sem gerir því kleift að framlengja um ár til viðbótar.

TENGT EFNI
Markahæstur í Hollandi og aldrei spilað betur
„Maður er kominn á samningsárið og það er mikilvægt að standa sig. Maður er bara að fókusa á að standa sig vel og og hjálpa liðinu að vinna leiki og auðvitað fyrir sjálfan sig líka upp á næsta skrefið. Félagið á möguleika á að framlengja samninginn og það mun örugglega vera rætt á næstunni," sagði Brynjólfur.
Er eitthvað sem að þú gerðir öðruvísi í sumar?
„Nei bara að vera hungraður. Halda áfram að æfa eins og passa að koma í góðu formi inn í tímabilið."
„Ég geri bara ráð fyrir að þeir munu nýta ákvæðið. Ég er ánægður í Groningen eins og er. Mér líður mjög vel þarna. Það er frábær staður þannig að ég er bara að fókusa á að spila vel og ef það kemur eitthvað þá bara kemur það. En ég er ekkert að reyna að skoða að ég vilji fara í janúar eða í sumar, bara njóta sín á meðan maður er inni á vellinum."
Staðarmiðillinn Birminghammail orðaði hann við Birmingham en Willum Þór Willumsson, eldri bróðir Brynjólfs, spilaði með liðinu frá 2024–2026.
„Auðvitað væri það skemmtilegt sko. Brósi er náttúrulega búinn að vera þar. Það voru bara einhver blaðamannaskrif. Ég hef ekkert heyrt neitt meira en það er auðvitað skemmtilegt. England er frábær staður og maður hefur heyrt góða hluti um fótboltann þar. Það væri skemmtilegt."