Fotbolti.net
11.11.26 - 14:00
Kári Snorrason

Dalvík/Reynir leggur niður kvennaliðið - Breyttar forsendur eftir ákvörðun KA

Dalvík/Reynir lék í 2. deild kvenna á liðnu tímabili og endaði í sjöunda sæti.

Dalvík/Reynir lék í 2. deild kvenna á liðnu tímabili og endaði í sjöunda sæti.

Canon

Mynd: Davíð Þór Friðjónsson

Kvennaboltinn
Dalvík/Reynir leggur niður meistaraflokk kvenna, þremur árum eftir að liðið var endurvakið eftir um 30 ára hlé.

Liðið lék í 2. deild kvenna á liðnu tímabili og endaði í sjöunda sæti.
KA slítur samstarfinu við Þór
TENGT EFNI

KA slítur samstarfinu við Þór

Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að samstarf við Þór/KA hafi gert félaginu kleift að halda liðinu úti. Forsendur samstarfsins hafi breyst þegar KA ákvað að draga sig úr samstarfinu við Þór.

Félagið hefur lýst yfir áhyggjum að stelpurnar í yngri flokkum missi leiðina upp í meistaraflokk hjá félaginu en vonast til að liðið verði endurvakið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.