Fotbolti.net
11.11.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eyjó: Valur sendi fyrirspurn sem var ekki tekin lengra

Eyjó: Valur sendi fyrirspurn sem var ekki tekin lengra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í haust var talsvert slúðrað um þann möguleika að þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Viktor Örn Margeirsson gætu farið frá Breiðabliki til Vals þar sem þeirra gamli þjálfari, Halldór Árnason, var að taka við.

Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, staðfestir að Valur sendi fyrirspurn varðandi Viktor Örn en það var ekki tekið lengra.
Er Höskuldur á leið í Val?
TENGT EFNI

Er Höskuldur á leið í Val?

Varðandi leikmannamál, það var slúðrað um að fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson og Viktor Örn Margeirsson gætu farið í Val. Svo hefur verið slúðrað um að Valur hafi boðið í Viktor. Er það rétt og hvernig er staðan á þessu?

„Það er ekkert í gangi þar. Við settum allt á ís þegar ljóst var að það yrðu þjálfarabreytingar hjá okkur, nýr þjálfari þarf að taka afstöðu til leikmanna, bæði þeirra sem eru hjá okkur og þeirra sem vonandi koma til okkar. Við settum allt á ís og erum að fara á fullt í þessi mál núna. Nýr þjálfari verður að fá að hafa mikið um það að segja hvernig staðan á leikmannahópnum þróast."

Áður en allt var sett á ís, lagði Valur fram tilboð eða sendi fyrirspurn varðandi Viktor?

„Þeir sendu fyrirspurn, en það var ekkert tekið neitt lengra. Varðandi Höskuld þá hefur ekkert átt sér stað."
Valur hefur reynt að fá Viktor.

Valur hefur reynt að fá Viktor.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.