Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 12. desember 2019 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Wolves: Diogo Jota fær 9
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Sky Sports hefur lokið við að gefa leikmönnum einkunnir eftir leiki kvöldsins í Evrópudeildinni.

Tveir leikir fóru fram á Englandi þar sem Manchester United og Wolves unnu stórsigra gegn AZ Alkmaar og Besiktas.

Rauðu djöflarnir tryggðu þar með toppsæti L-riðils á meðan Úlfarnir enda í öðru sæti K-riðils.

Mason Greenwood var besti maður vallarins í sigri Man Utd. Hann skoraði tvö og fiskaði vítaspyrnu sem Juan Mata skoraði úr.

Í Wolverhampton var Diogo Jota maður leiksins. Hann kom inn af bekknum á 56. mínútu og var búinn að skora þrennu fyrir 70. mínútu.

Man Utd: Romero (7), Young (7), Tuanzebe (7), Maguire (7), Williams (7), Matic (6), Garner (6), Mata (7), Pereira (6), Greenwood (8), Martial (6).
Varamenn: Laird (5), Chong (6).

AZ Alkmaar: Bizot (6), Svensson (6), Clasie (5), Wuytens (5), Wijndal (5), Midtsjo (5), Stengs (6), Koopmeiners (5), Sugawara (5), De Wit (5), Idrissi (7).
Varamenn: Vlaar (5), Ouwejan (5), Druijf (5).



Wolves: Ruddy (7); Bennett (7), Coady (7), Kilman (7); Buur (8), Dendoncker (9), Neves (7), Moutinho (7), Vinagre (9); Neto (8), Cutrone (8).
Varamenn: Jota (9), Perry (6), Otasowie (6)

Besiktas: Yuvakuran (6); Kalafat (6), Uysal (5), Kaya (6), Rebocho (6); Secgin (6), Ozyakup (6); Lens (6), Yalcin (5), Boyd (6); Nayir (5).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner