Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 13. janúar 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton að sækja El Ghazi frá Aston Villa
Anwar El Ghazi.
Anwar El Ghazi.
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Anwar El Ghazi er að yfirgefa herbúðir Aston Villa og mun hann ganga í raðir Everton.

Þetta segir ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano sem er mjög áreiðanlegur þegar kemur að fréttum sem snúa að félagaskiptamarkaðnum.

Lucas Digne er farinn frá Everton til Aston Villa, en El Ghazi er ekki hluti af þeim kaupum. Þetta eru tveir mismunandi dílar. Ekki kemur fram hvað Everton mun borga fyrir El Ghazi.

El Ghazi er hollenskur kantmaður sem hefur spilað með Aston Villa frá 2018. Þar áður var hann leikmaður Ajax.

Hinn 26 ára gamli El Ghazi verður líklega leikmaður Everton á allra næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner