Fotbolti.net
13.02.26 - 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið kvöldsins: Rosenior gerir sjö breytingar

Byrjunarlið kvöldsins: Rosenior gerir sjö breytingar
Canon

Mynd: EPA

Það fara tveir leikir fram í enska bikarnum í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Chelsea er eina úrvalsdeildarfélagið sem mætir til leiks og stillir Liam Rosenior þjálfari upp sterku byrjunarliði, þar sem einhverjir lykilmenn eru þó hvíldir.

Rosenior gerir sjö breytingar frá 2-2 jafntefli gegn Leeds um síðustu helgi þar sem Enzo Fernández og Joao Pedro eru á bekknum ásamt Malo Gusto og Tosin Adarabioyo, sem er kominn aftur eftir meiðsli.

Liam Delap leiðir sóknarlínuna með Alejandro Garnacho, Estevao og Pedro Neto sér til stuðnings. Þá byrjar Moisés Caicedo á miðjunni með hinum efnilega Andrey Santos.

Chelsea heimsækir Hull City á sama tíma og Wrexham spilar við Ipswich í Championship-slag. Liðin eigast við í 32-liða úrslitum.

John Lundstram, fyrrum leikmaður Everton og Sheffield United, er meðal varamanna hjá Hull. John Egan, sem var samherji Lundstram hjá Sheffield, er í byrjunarliðinu í kvöld ásamt Paddy McNair og Lewis Koumas sem er á lánssamningi frá Liverpool.

Hull: Phillips; Coyle, Egan, McNair, McCarthy, Giles; Hadžiahmetovi?, Slater, Hirakawa; Koumas, Millar.
Varamenn: Pandur, Lundstram, Jacob, Drameh, Gelhardt, Joseph, Famewo, Dowell, Tinsdale.

Chelsea: Sanchez; James, Fofana, Sarr, Hato; Caicedo, Andrey Santos; Neto, Estevao, Garnacho; Delap.
Varamenn: Sharman-Lowe, Gusto, Acheampong, Tosin, Badiashile, Enzo, Derry, Joao Pedro, Mheuka.



Wrexham: Okonkwo, Cleworth, Hyam, Doyle, Longman, Dobson, Windass, Thomason, Rathbone, O'Brien, Smith
Varamenn: Burton, Scarr, Kabore, Barnett, Sheaf, Broadhead, Keillor-Dunn, Cadamarteri, Moore

Ipswich: Palmer, Baggott, Kipre, Greaves, Johnson, Cajuste, Neill, McAteer, Egeli, Akpom, Hirst
Varamenn: Button, Furlong, O'Shea, Matusiwa, Taylor, Mehmeti, Clarke, Azon, Boniface
Byrjunarlið kvöldsins: Rosenior gerir sjö breytingar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.